netlagnir.is

Sérfræðingar í UniFi

UniFi — eitt kerfi utan um allt netið

UniFi frá Ubiquiti er heildstætt netkerfi þar sem beinir, switchar, aðgangspunktar og eftirlit eru öll stjórnuð frá einu stjórnborði. Engin áskriftar- eða leyfisgjöld, fagmannlegur búnaður og kerfi sem vex með þér — frá heimili upp í heilt fyrirtæki. Við hönnum, setjum upp og rekum UniFi-kerfi af öllum stærðum.

Kerfið

Helstu einingar UniFi-netkerfis

Eitt stjórnborð

UniFi stjórnborðið gefur heildarsýn yfir allt netið — tæki, notendur, umferð og villur — í vafra eða appi, hvar sem þú ert.

Þráðlausir aðgangspunktar

WiFi 6 og WiFi 7 aðgangspunktar með þráðlausu reiki (roaming) milli punkta. Við mælum húsnæðið og staðsetjum punktana rétt svo netið nái í hvern krók.

Switchar og PoE

Netskiptar (switchar) með PoE sem knýja aðgangspunkta í gegnum netlögnina sjálfa — færri snúrur, snyrtilegri tengiskápur.

Gátt og öryggi

Cloud Gateway beinir með innbyggðum eldvegg, VLAN-uppskiptingu (t.d. gestanet og fyrirtækjanet aðskilin), VPN-aðgangi og netumferðarstýringu.

Kostirnir

Af hverju UniFi?

Engin leyfisgjöld — þú borgar bara fyrir búnaðinn.
Skalanlegt — byrjar smátt og stækkar eftir þörfum, allt í sama stjórnborði.
Fjaraðgangur — við getum fylgst með kerfinu og brugðist við án þess að mæta á staðinn.
Eitt vistkerfi — net, WiFi, kerfi sem vinna saman

Er netið ekki í fullum hraða?

Við mætum, mælum lagnir, tökum út netkerfið þitt og komum með tillögur að úrbótum. Við erum með helsta búnað með okkur þannig að við getum í flestum tilfellum klárað verkefnið í fyrstu heimsókn.
Senda verkbeiðni